Jökulhlaup úr Fossadal í Esjufjöllum

Á síðustu áratugum hefur myndast jökulstíflað lón í Fossadal í Esjufjöllum á milli Vesturbjarga og Skálabjarga í kjölfar jökulhörfunar. Tjarnir mynduðust fyrst í Fossadal á níunda áratug síðustu aldar en lónið, eins og það er nú, hafði tekið á sig mynd í kringum árið 2005. Þegar lónið nær nægri hæð hleypur vatnið undir Esjufjallajökul og skilar sér í Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. Þetta eru lítt áberandi jökulhlaup þar sem Jökulsárlón dempar þau og áhrif þeirra í byggð eru því lítil. Þess eru dæmi að aukið vatn vegna jökulhlaupa hafi fært gönguleiðir við Jökulsárlón á kaf, rennsli Jökulsár á Breiðamerkursandi hafi aukist til muna og ísjakar hrannast upp við útfallið úr lóninu. Á vatnsborðsstöð Veðurstofu Íslands sjást skyndilegar breytingar á vatnsborði Jökulsárlóns við flest hlaupanna. Tekist hefur að tímasetja tíu jökulhlaup úr Fossadalslóni sem öll urðu að sumarlagi, það fyrsta árið 2010. Fylgst var með slíku hlaupi dagana 12.–14. júlí 2025 en þá voru liðin tvö ár frá síðasta jökulhlaupi. Búnaður var settur upp til að skrásetja atburðinn á myndrænan hátt með nákvæmum tímasetningum. Hlaupið hófst með jöfnum leka en að 37 klukkustundum liðnum jókst útrennsli og kraftmikið hlaup úr lóninu stóð í tæpan sólarhring. Hlaupið skilaði um 45 milljón m³ vatns úr Fossadalslóni og rennsli í hámarki var um 415 m³/s. Skjálftamælir Veðurstofu Íslands í Káraskeri í Breiðamerkurjökli nam óróa frá hlaupinu.

Authors

Publication Details

Published
2025-11-15
DOI
https://doi.org/10.33799/jokull2025.75.087
Primary Topic
Groundwater and Isotope Geochemistry
Type
article
Field-Weighted Citation Impact
0.00
Controls
|||
ALL TIME
JAN
FEB
MAR
APR
MAY
JUN
JUL
AUG
SEP
OCT
article

Jökulhlaup úr Fossadal í Esjufjöllum

Jón Viðar Sigurðsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Gunnar B. Guðmundsson, Fanney Ósk Gísladóttir
Groundwater and Isotope Geochemistry
article

Jökulhlaup úr Fossadal í Esjufjöllum

Jón Viðar Sigurðsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Gunnar B. Guðmundsson, Fanney Ósk Gísladóttir
article en

Abstract

Á síðustu áratugum hefur myndast jökulstíflað lón í Fossadal í Esjufjöllum á milli Vesturbjarga og Skálabjarga í kjölfar jökulhörfunar. Tjarnir mynduðust fyrst í Fossadal á níunda áratug síðustu aldar en lónið, eins og það er nú, hafði tekið á sig mynd í kringum árið 2005. Þegar lónið nær nægri hæð hleypur vatnið undir Esjufjallajökul og skilar sér í Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. Þetta eru lítt áberandi jökulhlaup þar sem Jökulsárlón dempar þau og áhrif þeirra í byggð eru því lítil. Þess eru dæmi að aukið vatn vegna jökulhlaupa hafi fært gönguleiðir við Jökulsárlón á kaf, rennsli Jökulsár á Breiðamerkursandi hafi aukist til muna og ísjakar hrannast upp við útfallið úr lóninu. Á vatnsborðsstöð Veðurstofu Íslands sjást skyndilegar breytingar á vatnsborði Jökulsárlóns við flest hlaupanna. Tekist hefur að tímasetja tíu jökulhlaup úr Fossadalslóni sem öll urðu að sumarlagi, það fyrsta árið 2010. Fylgst var með slíku hlaupi dagana 12.–14. júlí 2025 en þá voru liðin tvö ár frá síðasta jökulhlaupi. Búnaður var settur upp til að skrásetja atburðinn á myndrænan hátt með nákvæmum tímasetningum. Hlaupið hófst með jöfnum leka en að 37 klukkustundum liðnum jókst útrennsli og kraftmikið hlaup úr lóninu stóð í tæpan sólarhring. Hlaupið skilaði um 45 milljón m³ vatns úr Fossadalslóni og rennsli í hámarki var um 415 m³/s. Skjálftamælir Veðurstofu Íslands í Káraskeri í Breiðamerkurjökli nam óróa frá hlaupinu.

Vol. 75(1)
Openalex Percentile: Top 25%
Groundwater and Isotope Geochemistry
AI Navigator

Ask Laika to Summarize, Analyze, and Connect papers live on the map.

Summarize Papers & Methodologies

Extract key findings, datasets, and comparative methods across publications.

Benchmark Rankings & Visual Analytics

Rank top research institutions, authors, funders, topics, and journals by Field-Weighted Citation Impact (FWCI) and paper volume with instant charts.

Connect Distant Disciplines

Bridge topological clusters on the map to find hidden collaborative intersections.